Nanitor um árabil hluti af öryggisþjónustu Tölvuþjónustunnar

Árni Rúnar Birnuson • 5. október 2026

Nanitor um árabil hluti af öryggisþjónustu Tölvuþjónustunnar

Tölvuþjónustan hefur um árabil verið í samstarfi við íslenska netöryggisfyrirtækið Nanitor og nýtt lausn fyrirtækisins sem hluta af öryggisþjónustu fyrir viðskiptavini sína. Samstarfið nær meðal annars til vöktunar og greiningar á öryggisstöðu tölvukerfa og aðstoðar fyrirtæki að halda betur utan um veikleika og nauðsynlegar úrbætur.

Nanitor gefur rauntíma yfirsýn yfir öryggisstöðu upplýsingakerfa og greinir meðal annars veikleika, öryggisstillingar og stöðu uppfærslna. Kerfið hjálpar þar að auki við að forgangsraða því sem þarf að laga þannig að fyrirtæki geti einbeitt sér fyrst að þeim atriðum sem mestu máli skipta.


„Við höfum unnið með Nanitor í mörg ár og lausnin hefur orðið mikilvægur hluti af því hvernig við nálgumst öryggismál hjá viðskiptavinum okkar. Það er ekki nóg að vita að eitthvað sé að. Það þarf líka að sjá hvað skiptir mestu máli og geta brugðist við því á skipulegan hátt“ segir Eyjólfur Stefánsson tæknistjóri Tölvuþjónustunnar.


Mikilvægi slíkrar yfirsýnar hefur aukist á síðustu árum samhliða auknum kröfum til fyrirtækja um netöryggi og rekjanleika. Nanitor er því nýtt bæði hjá fyrirtækjum sem kaupa heildstæða rekstrarþjónustu af Tölvuþjónustunni og þar sem þörf er á afmarkaðri öryggisþjónustu.

Nanitor er íslenskt netöryggisfyrirtæki, stofnað árið 2014, og hefur þróað lausn sína með áherslu á stöðuga greiningu og yfirsýn yfir öryggisstöðu fyrirtækja. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar í Reykjavík og þjónustar viðskiptavini bæði hér á landi og erlendis.