Rekstrartruflanir hjá Microsoft hafa áhrif á Outlook og Microsoft 365
13. nóvember 2026
Umfangsmiklar rekstrartruflanir hjá Microsoft hafa haft áhrif á Outlook og fleiri Microsoft 365-þjónustur frá því síðdegis í gær, 12. nóvember. Notendur víða um heim hafa lent í vandræðum með að tengjast tölvupósti og nýta ýmsa eiginleika þjónustunnar.
Hvaða þjónustur verða fyrir áhrifum?
Truflanirnar hafa fyrst og fremst áhrif á Exchange Online, sem sér um tölvupóstþjónustu Microsoft 365.
Notendur geta meðal annars orðið varir við:
- Erfiðleika við að opna tölvupóst í Outlook.
- Tafir á sendingu og móttöku tölvupósts.
- Truflanir í dagatali og fundarbókunum í Microsoft Teams.
- Takmarkaða virkni í Microsoft 365 Copilot og öðrum tengdum þjónustum.
Áhrifin eru mismunandi eftir þjónustum og notendum á meðan aðal virkni Microsoft Teams, svo sem spjall og fjarfundir, hefur að mestu haldist virk.
Microsoft vinnur að lausn
Samkvæmt upplýsingum hefur Microsoft greint vandamál í innviðum sínum sem hefur haft áhrif á tengingar og afkastagetu þjónustunnar.
Fyrirtækið hefur nú þegar hafið viðgerðir og greinir frá auknum stöðugleika í þeim kerfum sem hafa verið uppfærð. Enn er þó unnið að því að koma þjónustunni að fullu í eðlilegt horf. Microsoft hefur sagt að svo stöddu er ekkert bendi til þess að rekstrartruflanirnar stafi af netárás.
Hvað geta notendur gert?
Ef Outlook eða aðrar Microsoft 365-þjónustur virka ekki sem skyldi er ráðlagt að fylgjast með stöðu þjónustunnar hjá Microsoft.
Þar sem vandinn er í innviðum Microsoft er almennt ekki hægt að leysa hann með breytingum á tölvum eða stillingum notenda.
Við mælum með að nota aðrar samskiptaleiðir fyrir áríðandi erindi á meðan truflanir standa yfir.
Hægt er að fylgjast með stöðu kerfa hjá Microsoft: Þjónustustaða Microsoft
Staða upplýsinga: 13. nóvember 2026, kl. 08:09









