Íslandshótel velur Tölvuþjónustuna.

Árni Rúnar Birnuson • 17. nóvember 2026

Íslandshótel hefur samið við Tölvuþjónustuna um hýsingu á tölvukerfi fyrirtækisins. Fyrirtækið rekur fjölda hótela og nær samningurinn til hýsingar og  vöktunar.


Í hótelrekstri skiptir miklu máli að kerfi séu stöðug og að hægt sé að bregðast hratt við ef eitthvað kemur upp. Samningurinn er því liður í að tryggja samfellu í rekstri og halda utan um þau kerfi sem starfsemin byggir á.


Reksturinn hjá þeim er í gangi allan sólarhringinn og því skiptir miklu máli að kerfin séu stöðug og að hægt sé að fá viðbrögð þegar þess þarf. Tölvuþjónustan er með þessa hluti í föstum farvegi og það er það sem þau vilja ná fram með þessu samstarfi.


Árni Rúnar, viðskiptaþróunarstjóri, Tölvuþjónustunnar:

„Við erum ánægð með að Íslandshótel hafi valið að treysta Tölvuþjónustunni fyrir hýsingu á sínum kerfum. Hótelrekstur stoppar aldrei og kerfin þurfa að standast það. Við leggjum mikla áherslu á skýrt verklag, stöðuga vöktun og skjót viðbrögð. Það er einmitt það sem rekstur eins og þessi þarfnast. Við hlökkum til samstarfsins.“


Rósa María Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Íslandshótela:

„Hjá Íslandshótelum er starfsemin í gangi allan sólarhringinn, alla daga ársins, og gestir okkar treysta á að allt gangi snurðulaust fyrir sig. Þess vegna skiptir okkur miklu máli að kerfin séu stöðug og að við fáum skjót viðbrögð þegar á þarf að halda. Tölvuþjónustan er með þessa hluti í föstum farvegi og samstarfið styrkir samfelluna í rekstrinum hjá okkur.“


Eftir Árni Rúnar Birnuson • 13. nóvember 2026
Rekstrartruflanir hjá Microsoft hafa áhrif á Outlook, Teams og fleiri Microsoft 365-þjónustur. Sjáðu nýjustu upplýsingar um stöðuna.
Eftir Árni Rúnar Birnuson • 5. október 2026
Nanitor um árabil hluti af öryggisþjónustu Tölvuþjónustunnar