A4 semur við Tölvuþjónustuna
Egilsson ehf sem starfar í dag undir merkjum A4 hefur samið við Tölvuþjónustuna um rekstur á tölvu- og upplýsingakerfa fyrirtækisins. Samningurinn nær meðal annars til daglegs reksturs, notendaþjónustu, hýsingar, vöktunar og umsýslu kerfa. A4 er með starfsemi víða um land þar sem tölvukerfi og samskipti þurfa að vera stöðug í daglegum rekstri. Með samningnum tók Tölvuþjónustan við heildstæðri umsjón tölvumhverfisins.
„Við hjá Tölvuþjónustunni erum afar þakklát fyrir það traust sem A4 sýnir okkur með þessum samningi og samstarfið hefur farið vel af stað,“ segir Árni Rúnar Birnuson, viðskiptaþróunarstjóri hjá Tölvuþjónustunni.
„Við erum afar ánægð með hversu vel innleiðingin gekk. Yfirfærslan var vel undirbúin og gekk hnökralaust fyrir sig, án þess að hafa áhrif á daglegan rekstur. Frá fyrsta degi höfum við fundið fyrir góðri þjónustu, skýrum samskiptum og metnaði hjá Tölvuþjónustunni,“ segir Lárus Guðjón Lúðvígsson, framkvæmdastjóri vörusviðs hjá A4.








