Þjónusta fyrir þitt fyrirtæki

Tölvuþjónustan hjálpar fyrirtækjum með alhliða tölvu, hýsingar og netmál ásamt því að styðja við hagkvæma nýtingu á Microsoft 365 lausnum og öðrum tæknilausnum sem styðja öruggan og skilvirkan rekstur.

Hafðu samband

Þjónustuborð


Fljót og framúrskarandi aðstoð fyrir notendur þegar upp koma tæknivandamál eða spurningar í starfi.

Vettvangur


Þjónusta á staðnum þegar þarf uppsetningu, bilanagreiningu, viðhald eða aðstoð sem ekki leysist í fjartengingu.

Hýsing og Rekstur


Hýsing í öflugum gagnverum og afritun ásamt öflugum rekstrarlausnum sem tryggja góðan upptíma kerfa.

Netrekstur


Rekstur og eftirlit með netbúnaði, tengingum, eldveggjum og þeim innviðum sem tengja vinnuumhverfið saman.

Vöktun / Eftirlit


Stöðug vöktun og viðbragð allan sólarhringinn sem hjálpar til við að greina frávik fyrr, bregðast hraðar við og minnka líkur á truflunum.

Leyfisráðgjöf


Veitum ráðgjöf fyrir Microsoft 365 leyfi til að tryggja að fyrirtæki séu með réttu leyfin og lausnirnar fyrir sinn rekstur.

Öryggisráðgjöf


Greining á áhættum, aðgangs-stýringu, vöktun, viðbrögð við öryggisatvikum og innleiðingu lausna sem vernda gögn, kerfi og notendur.

Skýjalausnir


Með samspili lausna á borð við Microsoft 365, Power Platform og öruggum skýjainnviðum má einfalda rekstur og byggja upp nútímalegan stafrænan vinnustað.

Við getum aðstoðað með vinnu er varðar persónuvernd, upplýsingaöryggi og regluverk.