Íslandshótel fær Tölvuþjónustuna til að sjá um hýsingu og rekstur

Árni Rúnar Birnuson • 21. júlí 2026

Íslandshótel hefur samið við Tölvuþjónustuna um hýsingu og rekstur á tölvukerfi fyrirtækisins. Fyrirtækið rekur fjölda hótela og nær samningurinn til hýsingar, reksturs, vöktunar og reglulegrar umsýslu á þeim kerfum sem Tölvuþjónustan ber ábyrgð á.


Í hótelrekstri skiptir miklu máli að kerfi séu stöðug og að hægt sé að bregðast hratt við ef eitthvað kemur upp. Samningurinn er því liður í að tryggja samfellu í rekstri og halda utan um þau kerfi sem starfsemin byggir á.


Reksturinn hjá þeim er í gangi allan sólarhringinn og því skiptir miklu máli að kerfin séu stöðug og að hægt sé að fá viðbrögð þegar þess þarf. Tölvuþjónustan er með þessa hluti í föstum farvegi og það er það sem þau vilja ná fram með þessu samstarfi.


Eftir Árni Rúnar Birnuson • 5. október 2026
Nanitor um árabil hluti af öryggisþjónustu Tölvuþjónustunnar
Verslun A4 í Hafnarfirði
Eftir Árni Rúnar Birnuson • 13. maí 2026
Egilsson ehf sem starfar í dag undir merkjum A4 hefur samið við Tölvuþjónustuna um rekstur á tölvu- og upplýsingakerfa fyrirtækisins.