Þjónustuborð
Við rekum öflugt þjónustuborð þar sem áhersla er lögð á persónulega þjónustu, skjót viðbrögð og lausnamiðaða nálgun sem styður við daglegan rekstur viðskiptavina. Tölvuþjónustan býr yfir víðtækri reynslu af þjónustu við notendur og tryggir faglega, örugga og skilvirka þjónustu.
Notaðar eru lausnir sem uppfylla allar kröfur um net- og upplýsingaöryggi, og er ávallt tryggt að notandi sé upplýstur um yfirtöku og veiti samþykki sitt í samræmi við persónuverndarsjónarmið.


